Sauðburður hefst eftir 3 vikur
Sauðburður á að byrja óvenju snemma þetta árið, eða um viku fyrr en venjulega. Fyrstu ærnar eiga tíma 28.apríl og er það í fyrsta skiptið á okkar búskapartíð sem sauðburður hefst af alvöru í apríl. Veðráttan hefur breyst mjög mikið á þessari öld og nú vorar mun fyrr og snjóþyngsli eru yfirleitt engin. Nú krossum við fingur og vonum að vorhretið, sem vonandi kemur barasta ekki, komi annaðhvort fyrir sauðburð eða ekki fyrr en seint í maí þegar lömbin eru orðin nokkuð stálpuð.
