Velkomin
Lón í Kelduhverfi

1.júní 2026
Vefverslun Mórúna
Ný og endurbætt vefverslun Mórúna verður opnuð í byrjun júní. www.morunir.is
“ Faðminn breiða fjöllin blá
fjöturs greiða böndin.
Alltaf seiðir einhver þrá
inn í heiðalöndin.. ”
Lón er vestarlega í Kelduhverfi og stendur rétt sunnan lóns sem bærinn er nefndur eftir. Lónin eru þó á korti merkt Lónslón! Sama ættin hefur búið hér síðan 1875. Lengst af hefur sauðfjárbúskapur verið aðal búgreinin, en fyrr var mikill reki sem nýttur var ásamt æðarvarpi. Æðarvarpið er enn nýtt, um 500 hreiður árlega, en einnig er stunduð skógrækt á 55 ha.
búskapurinn
Sauðfjárrækt, skógrækt, æðarvarp
Sauðfjárbúskapur er aðalbúskapurinn í Lóni. Búið er með á rúmlega 500 kindur. Tvívegis hefur verið skorið niður vegna riðu, 1991 og 1999. Núverandi sauðfjárstofn í Lóni er upprunninn frá Víkingavatni og kom í Lón haustið 2002. Stofninn á Víkingavatni var einn af þeim sem ekki var skorinn niður 1986 þegar skorið var niður á 11 bæjum í sveitinni vegna riðuveiki. Hann hefur verið á Víkingavatni síðan 1944 þegar fengið var fé á Austursléttu, Þistilfirði og Langanesi eftir niðurskurð vegna mæðiveiki. Með tilkomu verndandi arfgerða gegn riðu er hættan á riðuveiki liðin hjá

Skógræktin
Skógrækt hófst á 25 ha 2002 þegar gerður var samningur við Norðurlandsskóga. Bætt var 30 ha við svæðið 2024 þegar nýr samningur var gerður við Skógræktina
Markmiðið er að nýta skóginn til skjóls og beitar fyrir kindurnar. Sú nýting er þegar hafin á eldra svæðinu




