Forystufé

Forystufé er séríslenskur sauðfjárstofn. Það hefur einstaka forystuhæfileika sem ekki fyrirfinnast í öðrum sauðfjárkynum. Einungis eru um 1500 hreinræktaðar forystukindur á Íslandi eða um 0,4% alls sauðfjár í landinu.

Forystufjárull til sölu Fræðasetur um forystufé
Langar þig í forystukind?

Á HVERJU HAUSTI ERUM VIÐ MEÐ NOKKUR FORYSTULÖMB TIL SÖLU

Lömb til sölu

Einstakir hæfileikar


Leiðtogahæfileikar þeirra eru arfgengir og ekki tengdir kyni, aldri eða lit.
Forystukindur vita hvenær von er á vondu veðri og eru mjög ratvísar

Forystufé í Lóni

Við getum rakið ættir forystufjár okkar til 1944. Yfirleitt eigum við um 8-10 fullorðnar forystukindur í fjárhúsunum hjá okkur

Sérstakt útlit

Forystukindur eru grannvaxnar, háfættar og léttar á sér.
Augnaráð þeirra er gáfulegt og kvikt.Forystukindur eru yfirleitt mislitar og hyrndar

Fora var í stofninum sem við keyptum frá Víkingavatni árið 2000. Hún er ættmóðir allra okkar forystukinda.